Lög STÍL – samþykkt á aðalfundi samtakanna 5. apríl 2018
1.grein Nafn Samtökin heita: Samtök tungumálakennara á Íslandi, skammstafað STÍL. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík.
2.grein Hlutverk
Hlutverk samtakanna er • að gangast fyrir ráðstefnum, námskeiðum og umræðufundum. • að standa fyrir útgáfu málgagns og stuðla að birtingu greina um kennslu tungumála. • að stuðla að aukinni samvinnu tungumálakennara á öllum skólastigum sem og samvinnu við kennara móðurmála. • að vera tengiliður við aðila er gæta hagsmuna tungumálakennara. • að koma fram fyrir hönd félaganna í málum sem varða þau sameiginlega.
3.grein Markmið
Markmið samtakanna er • að efla samstöðu og faglega samvinnu félaga tungumálakennara. • að standa vörð um menntun tungumálakennara og gæta þess að hún verði ætíð í samræmi við kröfur tímans. • að hafa stefnumótandi áhrif á kennslu erlendra mála í íslenskum skólum. • að efla tengsl við félög og stofnanir, innanlands og utan, sem á einhvern hátt tengjast starfssviði kennara erlendra mála.
4.grein Aðild
Rétt til aðildar hafa félög kennara í erlendum málum og félög kennara sem kenna íslensku sem annað/erlent mál. Tungumálakennarar, sem ekki hafa stofnað með sér félag í sinni grein en óska eftir aðild að samtökunum, eiga kost á að stofna félag sem hefur sama skipulag og önnur aðildarfélög.
5. grein Skipulag og stjórn Stjórn samtakanna skal skipuð af stjórnum aðildarfélaganna til tveggja ára í senn. Félögin skiptast á um að tilnefna formann og skipa einn fulltrúa hvers aðildarfélags sem hefur 20 félaga eða fleiri. Fámennari félög hafa áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum STÍL. Það aðildarfélag sem skipar formann hverju sinni skal jafnframt skipa annan fulltrúa til stjórnarsetu. Enginn skal sitja lengur í sama embætti innan stjórnar en 4 ár í senn. Stjórnarfundur hefur vald til að taka ákvarðanir sé löglega til fundarins boðað. Þó skal bera öll mál sem verulegur ágreiningur er um undir stjórnir einstakra félaga til samþykktar.
Stjórn skipa: formaður,varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur eftir fjölda stjórnarmanna. Stjórnin skiptir með sér verkum að undanskildum formanni. Stjórnin ræður vefstjóra. Stjórnin ber ábyrgð á starfsemi samtakanna og hefur umsjón með öllu starfi þeirra. Æðsta vald í málefnum samtakanna er í höndum stjórnar milli aðalfunda.
Formaður boðar stjórnarfundi í tölvupósti til stjórnarmanna eftir þörfum, að jafnaði eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Til stjórnarfundar skal boðað með minnst viku fyrirvara með dagskrá fundar. Stjórnarfund skal boða ef tveir stjórnarmenn óska og skal hann haldinn innan hálfs mánaðar frá því er óskin var lögð fram. Einu sinni til tvisvar á ári heldur stjórn STÍL fund með formönnum allra aðildarfélaga STÍL.
6. grein Fjármál Formaður ber ásamt gjaldkera ábyrgð á fjármálum samtakanna og hafa báðir prókúru. Aðildarfélögin greiða samtökunum árgjald. Árgjald er ákveðið á aðalfundi. Árgjöld aðildarfélaganna miðast við fjölda virkra félagsmanna. Árgjöld skulu hafa borist stjórn STÍL eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Á aðalfundi skal leggja fram ramma fyrir fjárhagsáætlun komandi árs. Skoðunarmenn fara árlega yfir reikninga samtakanna.
7. grein Útgáfa Í ritnefnd STÍL (Málfríðar) eiga sæti 4 fulltrúar frá aðildarfélögum auk eins fulltrúa úr stjórn STÍL. Aðildarfélög STÍL skipa fulltrúa í ritstjórn. Þau félög sem ekki eiga fulltrúa í ritstjórn skulu tilnefna tengilið. Ritstjórn skiptir með sér verkum og mótar ritstjórnarstefnu í samráði við stjórn STÍL.
8.grein Aðalfundur Aðalfundur fer með æðsta vald í samtökunum og skal hann haldinn fyrir að vori ár hvert í samræmi fið almenn lög um aðalfundi félagasamtaka. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir félagar aðildarfélaga að samtökunum. Til aðalfundar skal boða með minnst tveggja vikna fyrirvara í tölvupósti til formanna allra aðildarfélaga sem skulu framsenda fundarboðið á félagsmenn sína. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Í aðalfundarboði skal geta dagskrár. Á heimasíðu STÍL skal skýrsla stjórnar og aðildarfélaga vera aðgengileg með góðum fyrirvara. Á heimasíðunni skal einnig kynna lagabreytingar.
Á dagskrá aðalfundar skulu m.a. vera eftirtaldir liðir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara Fundargerð síðasta aðalfundar lesin og borin umdir fundinn Skýrsla stjórnar Skýrsla ritnefndar STÍL Reikningar lagðir fram Fjárhagsáætlun lögð fram Árgjald næsta árs ákveðið sem og útgjöld vegna útgáfimála, stjórnarsetu og nefndarstarfa Breytingar á lögum og samþykktum Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga Ágrip af skýrslum formanna aðildarfélaganna Önnur mál.
9. grein Lagabreytingar
Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi og skulu tillögur að breytingum berast með aðalfundarboði. Svo breytingar teljist samþykktar þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Breyttar samþykktir koma til framkvæmda strax að loknum aðalfundi. Tillögur um breytingar á samþykktum skulu hafa borist stjórn samtakanna fyrir 20. desember. Samþykktir þessar öðlast þegar gildi.
10. grein Félagsslit
Ef leggja á samtökin niður skal bera tillögu þess efnis upp á aðalfundi tvö ár í röð og skal auglýsa það eins og um breytingu á samþykktum sé að ræða. Eignir samtakanna og skuldir skulu skiptast á milli aðildarfélaga í réttu hlutfalli við félagafjölda þeirra. Svo slík tillaga teljist samþykkt þurfa minnst 2/3 hlutar fundarmanna að greiða henni atkvæði