Um STÍL
Þann 17. október 1985 voru Samtök tungumálakennara á Íslandi - STÍL formlega stofnuð. Að stofnuninni stóðu Félag dönskukennara, Félag enskukennara, Félag frönskukennara og Félag þýskukennara. Hugmyndir um faglega samvinnu tungumálakennara og hugsanleg samtök þeirra hafði oft borið á góma, bæði innan einstakra félaga og meðal kennara. Sum félögin höfðu haft með sér óformlega samvinnu um námskeið og ráðstefnur, m.a. í samvinnu við samtök tungumálakennara á Norðurlöndunum.
Félag dönskukennara og Félag enskukennara hafði um skeið haft talsverða samvinnu sem þótti lofa góðu og þar kom að hugmyndir um samtök voru kynntar innan félaganna. Þessar hugmyndir fengu góðar undirtektir og í fram- haldinu var haft samband við formenn Félags frönskukennara og Félags þýskukennara sem tóku málinu vel. Það stóð því ekkert í veginum fyrir því að hefjast handa.
Það sem ýtti hvað mest undir stofnun samtakanna var almennur áhugi á að tungumálakennarar eignuðust sitt eigið málgagn sem gæti orðið vettvangur faglegrar umræðu. Ekkert eitt félag hefði bolmagn til að halda uppi slíkri útgáfu. Með útgáfu málgagns opnaðist einnig tækifæri fyrir kennara í hinum dreifðu byggðum landsins að fylgjast betur með. Fyrsta tölublað af Málfríði kom út í desember 1985.
Ennfremur þótti augljóst að með samstilltu átaki næðist betri árangur í ýmsum sameiginlegum hagsmunamálum. Hér má nefna menntunarmál, gagna- og upplýsingamiðlun, gerð námsefnis og samstarf við hliðstæð samtök erlendis.
Það var frá upphafi gengið að því sem vísu að stofnun STÍL þýddi ekki að þar með væri hlutverki hinna einstöku félaga lokið. Þvert á móti var litið svo á að samtökin gætu verið mikill styrkur fyrir félögin sem hér eftir sem hingað til myndu sinna sérmálum síns félags.

About STIL
STÍL, The Association of Foreign Language Teachers in Iceland, which is an umbrella organization of foreign and second language teachers. In Iceland we teach Danish, English, French, German, Norwegian, Spanish and Swedish and Icelandic as a second language in Iceland.
With a membership of 800, its role is to provide language teachers with support and assistance in their professional development. STIL cooperates with various educational bodies both in Iceland and abroad. STIL is a member of UNESCO and the Nordic Baltic Region of FIPLV (The International Federation of Language Teachers Associations).