Ritsmiðja – Skrifað til að hugsa og skilja
Pdf skjal til útprentunar með nánari lýsingu
Námskeiðið er ætlað tungumálakennurum, móðurmálskennurum og háskólanemum
Dagsetning: 14.-19. ágúst 2011
Staður: Vesturfarasetrið Hofsósi
Aðalkennari:
Dr. Jeffrey Wilhelm, prófessor í ensku við Boise State University, í Idaho
“Haustvítamín” á Hofsósi.
Ritsmiðjunni sem halda átti á Hofsósi vikuna 14.-19.ágúst var óvænt aflýst, vegna forfalla Jeffreys Wilhelm. Þegar á reyndi kom í ljós að áhugi var fyrir að hittast á Hofsósi samt sem áður. Niðurstaðan var sú að Ragnheiður Jónsdóttir, formaður STÍL, hljóp í skarðið og hélt tveggja daga vinnustofu í Frændgarði á Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Fámennt og góðmennt var í vinnustofunni, sem var skipuð reyndum kennurum frá þremur landshornum, Akureyri, Suðurlandi og Reykjavík, sem deildu reynslu sinni og innsýn af ritunarkennslu. Almenn ánægja var með að þátttakendur höfðu tækifæri til að verja tíma með kollegum á faglegum nótum, og á sama tíma safna vítamíni til vetrarins í fögru umhverfi Skagafjarðar.